Hoppa yfir valmynd
30. apríl 2024 Innviðaráðuneytið

Aðalsteinn Þorsteinsson tekur við verkefnum ráðuneytisstjóra innviðaráðuneytisins

Aðalsteini Þorsteinssyni, staðgengli ráðuneytisstjóra, hefur verið falið að taka við verkefnum ráðuneytisstjóra innviðaráðuneytisins frá 1. maí til og með 31. ágúst 2024. Það gerist eftir að Hermann Sæmundsson, fyrrum ráðuneytisstjóri, flyst í embætti ráðuneytisstjóra fjármála- og efnahagsráðuneytisins að beiðni fjármála- og efnahagsráðherra. 

Aðalsteinn hefur starfað sem skrifstofustjóri sveitarfélaga og byggðamála frá því í júní 2022. Þá hefur Aðalsteinn starfað sem forstjóri Byggðastofnunar frá árinu 2002. Aðalsteinn starfaði einnig tímabundið sem forstjóri Þjóðskrár Íslands árið 2022. Aðalsteinn er lögfræðingur að mennt og lauk embættisprófi frá Lagadeild Háskóla Íslands árið 1993. Hann hefur jafnframt lokið námi í opinberi stjórnsýslu fyrir stjórnendur í opinberum rekstri frá sama skóla. 

Guðni Geir Einarsson, sem verið hefur staðgengill skrifstofustjóra sveitarfélaga og byggðamála, tekur við verkefnum skrifstofustjóra tímabundið frá 1. maí til og með 31. ágúst 2024. Guðni Geir hefur starfað sem forstöðumaður Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um árabil. Guðni Geir hefur starfað við Stjórnarráð Íslands með hléum frá árinu 2002 og lengst af við störf tengd Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Guðni Geir er stjórnmálafræðingur að mennt og lauk BA prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 1992 og meistaraprófi frá Kaupmannahafnarháskóla í stjórnmálafræði árið 2001.

* Fréttinni var breytt fim. 2. maí til að leiðrétta orðalag en missagt var að Aðalsteinn og Guðni Geir hefðu verið settir í embætti.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum