Sorpa og Bambahús hljóta Kuðunginn og nemendur Árbæjarskóla eru Varðliðar umhverfisins
02.05.2024Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, veitti í dag fyrirtækjunum Sorpu...
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Borgartúni 26
105 Reykjavík
Sími: 545 8600
Netfang: [email protected]
Kt. 571189-1519
Afgreiðsla ráðuneytisins er opin virka daga kl. 8.30–16.00.
Verkefni umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins varða meðal annars umhverfis- og náttúruvernd, loftslagsmál, orkumál, sjálfbæra nýtingu auðlinda, mat á umhverfisáhrifum og minjavernd.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið varð til 31. janúar 2022 með forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta. Umhverfisráðuneytið var stofnað árið 1990, en með tilflutningi verkefna úr sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti og iðnaðarráðuneyti árið 2012 varð til umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Með flutningi orkumála til ráðuneytisins við síðustu stjórnarskipti tók ráðuneytið á sig núverandi mynd.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, veitti í dag fyrirtækjunum Sorpu...
Með nýtingu nýrra orkugjafa og bættri orkunýtni eru umtalsverð tækifæri til að auka orkuöryggi og...
Hvað er hringrásarhagkerfi? Markmiðið með hringrásarhagkerfi er að draga úr auðlindanotkun, auka líftíma auðlinda jarðar og koma í veg fyrir að efni og hlutir hverfi úr hagkerfinu sem úrgangur. Frekari upplýsingar um hringrásarhagkerfi.
Með aðgerðunum er áætlað að losun gróðurhúsalofttegunda á beinni ábyrgð Íslands muni hafa dregist saman um ríflega eina milljón tonna CO2-ígilda árið 2030 miðað við losun ársins 2005.
Hlutverk umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins er að skapa umgjörð um umhverfisvernd og sjálfbæra nýtingu náttúrugæða með velferð og jafnrétti kynslóðanna að leiðarljósi.
Verkefni ráðuneytisins eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson tók við embætti umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra 28. nóvember 2021. Hann var utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra frá 2017 - 2021, heilbrigðisráðherra 2008-2009 og heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra 2007-2008. Guðlaugur Þór er fæddur í Reykjavík 19. desember 1967 og hefur setið á Alþingi frá árinu 2003.